Posts Tagged by samskipti
Að vera vinur er ekkert grín
1 October, 2018 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Lesandi góður, ég veit ekki með þig en lengi vel hef ég velt því fyrir mér hvernig áhrif ég hef á fólkið í kringum mig. Er gagn af nærveru minni og hverju skilar hún? Gef ég af mér jafn mikið og ég raunverulega vil? Flestir vilja hafa góð áhrif á fólkið í kringum sig og vera góðar fyrirmyndir en það krefst áreynslu. Ég reyni að vera meðvituð um hvað það er sem ég gef frá mér og hvernig ég hátta […]
Unglingurinn og netið – Hvert er vandamálið?
5 May, 2018 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Ungdómurinn virðist alltaf vera að fara til andskotans af mismunandi ástæðum gegnum tíðina. Þegar ég var unglingur þá bar þar hæst klæðaburður, unglingadrykkja, miðbærinn og útivistartímar. Við klæddumst upp til hópa öllu svörtu, í svo rifnum buxum að þær héldust saman á voninni einni saman og litum helst út fyrir að vera meðlimir í einhvers konar sértrúarsöfnuði. Við byrjuðum mörg að drekka áfengi strax eftir fermingu og aðal samverustaður okkar voru sjoppurnar og miðbærinn um helgar. Foreldrar voru það ráðalausir […]
Félagsmiðstöðvastarfsfólk sem fyrirmyndir
18 May, 2017 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Unglingsárin er sá tími þar sem einstaklingur tekst á við að móta sjálfsmynd sína. Fyrirmyndir eru stór hluti af því að móta einstakling. Starfsfólk félagsmiðstöðva eru oft miklar fyrirmyndir og þurfum við því að einblína á það að gera okkar allra besta sem slíkar. Unglingsárin er sá tími þar sem einstaklingar læra samskipti, læra að bera virðingu fyrir öðrum ásamt því að hlusta á skoðanir sínar og annarra. Unglingsárin eru viðkvæmur tími á þroskaferlinu þar sem breytingar verða útlitislega og […]
Geta samfélagsmiðlar og góð samskipti verið vinir?
16 May, 2017 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Það er alltaf hægt að stoppa og hugsa, hvernig væri heimurinn ef þetta og hitt væri öðruvísi. Maður spyr sig hvort lífið væri betra, verra eða bara aðeins öðruvísi ef ýmislegt hefði aldrei gerst eða ef það myndi breytast. Spurning sem leitar oft á okkur sem vinnum með ungu fólki er hvort líf unglinga væri öðruvísi ef samskiptamiðlar (facebook, instagram, snapchat ofl.) væru ekki partur af lífi þeirra. Hægt er að hugsa þetta fram og til baka án þess virkilega […]
„Að heyra tjáningarmáta unga fólksins í dag, algjörlega til skammar!“
30 March, 2017 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Oft hef ég heyrt rætt á milli fullorðinna, hvað krakkar og unglingar hafa ljótan orðaforða , hvernig þau koma fram og þetta þurfi að laga og hreinlega beita ungdóminn meiri aga. Þá má líka spyrja sig hvar lærðu þau að tjá sig á þennan hátt ? Jú eins og sagt er þá læra börnin það sem fyrir þeim er haft. Mitt persónulega álit er að unglingar nútímans séu betur upplýstir á margan hátt eins og hefur komið í ljós […]