Posts Tagged by Unglingar
Er kynfræðsla í raun kynfræðsla?
31 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Kynfræðsla er eitthvað sem flestir kynnast fyrst þegar þeir eru í grunnskóla en það er margt sem getur verið á bak við hugtakið. Það sem fellur undir kynfræðslu er til dæmis: kynheilbrigði, blæðingar, sáðlát, getnaðarvarnir, kynsjúkdómar, kynlíf, klám, kynþroski, kynhneigð, kynvitund og fleira. En allt er þetta viðfangsefni sem mörgum finnst óþægilegt að tala um, samt sem áður er það mjög mikilvægt. Þegar ég hugsa um kynfræðslu þá hugsa ég um hvernig mín reynsla var af henni. Þegar ég var […]
Megum við vera með?
25 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Að vera unglingur, hvað er það? Nú höfum við það öll sameiginlegt að hafa verið unglingur. Í raun erfiðasta þroskaskeiðið, allavega samkvæmt mér. Við þekkjum það örugglega flest að á þessum tíma á ævi okkar, að okkar eigin sjálfsmynd er alls ekki fullmótuð. Ennþá viðkvæm, en samt með þörf fyrir sjálfræði. Erum að uppgötva heilan helling, eins og á öllum æviskeiðum okkar. En þarna er mikilvægur tími þar sem við erum næstum því fullorðin en samt ekki. Það er samt […]
Tíminn fyrir framan skjáinn
24 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Unglingar í dag eyða mun meira af tímanum sínum fyrir framan skjáinn en gert var áður fyrr. Nú er ekki lengur bara sjónvarp í boði heldur eru það líka snjallsímar, spjaldtölvur, leikjatölvur og margt meira. Á þessum tækjum er svo ótrúlega fjölbreytt val af ,,afþreyingu” í boði fyrir unglingana og má þar á meðal nefna TikTok, Snapchat og Youtube. En vita unglingarnir og foreldrarnir hvað þessi aukni skjátími þýðir fyrir þau eða hvaða áhrif þetta hefur á heilsu þeirra? Margar […]
Áhrif kláms á unglinga
23 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Tíminn líður og er margt sem breytist með honum. Það sem áður hefur verið talið ,,eðlilegt” er ekki samþykkt í dag og öfugt. Eitt af því sem breytist með tímanum er mannfólkið. Það er í okkar eðli að aðlagast nýjum hlutum. Tæknin er þróaðri og betri, fólk og mörg málefni opnari. Áður hefur kynlíf og klám verið taboo og enginn talað opinskátt um það. Það er mikilvægt að unglingar fái næga og góða kynfræðslu því kynlíf getur verið stór partur […]
Mikilvægi fjölbreyttra tómstunda
20 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Sem barn upplifði ég einelti af hálfu nokkurra bekkjarfélaga minna og hafði það slæm áhrif á mig andlega og braut niður sjálfsmynd mína. Mér fannst ég lítils virði og ómerkileg og vildi helst vera ósýnileg. Ég átti mjög erfitt með að tjá mig og var mjög feimin. Á unglingsaldri fór ég að læra leiklist. Þar lærði ég að opna mig, fór út fyrir þægindarammann, eignaðist vini og fór aftur að trúa á sjálfa mig. Leiklistin hafði mikil áhrif á líf […]
Mikilvægi Hinseginfræðslu
19 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Eins og flestir vita er ekkert að því að vera hinsegin og það ætti að teljast alveg jafn venjulegt og að vera gagnkynhneigður. Það er samt erfitt að gera sér grein fyrir því þegar allir sem maður þekkir eru gagnkynhneigðir. Þegar ég var fimmtán ára kom ég út úr skápnum fyrir þeim sem voru mér nánastir. Það er rétt að segja að það hafi verið það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni. Fyrir það fór ég í gegnum tvö […]
Erum við nógu dugleg að fræða ungmenni um mikilvægi tómstunda?
14 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Tómstundir eru skilgreindar á margvíslegan hátt en ekki eru allir fræðimenn sammála um hvernig best sé að skilgreina þær, þó ættu flestir að vera kunnugir orðinu tómstundir og geta gert grein fyrir því í stuttu máli hvað það gengur út á. Aftur á móti eru flestir sammála um mikilvægi tómstunda bæði fyrir börn og unglinga. Tómstundir eru mikilvægar fyrir bæði börn og ungmenni því þær draga til að mynda úr kvíða, vanlíðan og þunglyndi. Það kemur oft upp í huga […]
Mikilvægi kynfræðslu í grunnskólum
13 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Barna- og unglingsárin geta reynst okkur misjöfn og miserfið enda miklar breytingar sem eiga sér stað bæði á líkama og sál á því tímabili. Unglingsárin eru tími forvitni um hina og þessa hluti eins og ástina, kynhneigð og kynlíf svo eitthvað sé nefnt og mætti segja að ungmenni verði forvitnari með hverjum deginum sem líður. Kynfræðsla í grunnskólum spilar því lykilhlutverk í því að stuðla að kynheilbrigði ungmenna og ætti hún að vera skylduáfangi í aðalnámskrá grunnskólanna en ekki undirflokkur […]
Unglingar þurfa að gera sér grein fyrir hve slæmir orkudrykkir eru fyrir þá
11 May, 2021 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under Aðsendar greinar |
|
Neysla margs kyns orkudrykkja hefur aukist verulega meðal ungmenna upp á síðkastið. En hvers vegna? Orkudrykkir eru ávanabindandi og algengt er að ungmenni neyti þeirra til þess að ná fram einhverskonar örvandi áhrifum (Hólmfríður Þorgeirsdóttir, 2019), þeir eru sérstaklega vinsælir meðal ungmenna þar sem þeir draga úr einkennum þreytu og virðast bæta einbeitingu (Matvælastofnun, 2020). Unglingum finnst frábært að geta vakað langt fram á nótt, vaknað snemma og látið það ekki hafa nein áhrif á sig, „eða þannig”. Um leið […]