Hádegisverðarfundur FFF
27 November, 2013 | Posted by Eygló Rúnarsdóttir under |
Hvenær?
27.11.2013
12:00 - 13:00
Hvar?
Veitingastaðurinn Sólon
Undanfarin ár hefur Félag fagfólks í frítímaþjónustu staðið fyrir hádegisverðarfundum þar sem félagsmönnum og öðrum áhugasömum gefst kostur á fræðslu og umræðum yfir snarli. Þátttaka í fundunum er öllum að kostnaðarlausu en fundargestir geta keypt hádegisverð ef þeir óska.
Fyrsti hádegisverðarfundur FFF verður miðvikudaginn 27. nóvember kl. 12. Þá mun Steingerður Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, fjalla um þjónandi forystu í frístundastarfi undir yfirskriftinni Að vera leiðtogi er að vera mannlegur. Fundurinn verður á Sólon, Bankastræti 7a, 2. hæð.
Við hvetjum félagsfólk til að fjölmenna og taka þátt í umræðum í kjölfar erindisins og bjóða með sér öðrum áhugasömum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda línu á fagfelag@fagfelag.is.
F.h. fræðslunefndar FFF
Eygló Rúnarsdóttir